Komiði sæl
Fundur verður haldinn mánudaginn 30. ágúst á Suðurgötu 107 E.H
Við ætlum að komast að einhverri niðurstöðu með nýja kaflann í brautinni, teikna eitthvað niður svo ýtan geti græjað einhvað fyrir veturinn.
kv. Márus Líndal
|
||||||
|
Komiði sæl Fundur verður haldinn mánudaginn 30. ágúst á Suðurgötu 107 E.H Við ætlum að komast að einhverri niðurstöðu með nýja kaflann í brautinni, teikna eitthvað niður svo ýtan geti græjað einhvað fyrir veturinn. kv. Márus Líndal farið verður frá olísnesti ca kl 12, á morgun laugardag 14 ágúst. Allir velkomnir. Ernir, Jói Pétur, Símon, Svenni, Harpa, Júlía, Símon Orri og ???????????????? Eru einhverjir sem hafa áhuga á að flagga á morgun sunnudaginn 1.ágúst frá 12:oo til 15:30 ????? Áhugasamir hafi samband við Petu í síma 848-2797 Vegna kæru frá landeigendum í Borgarfirði verður motocrossið á Unglingalandsmóti UMFÍ fært frá nýrri braut í Borgarnesi í brautina okkar hér á Akranesi. Þrátt fyrir stuttan fyrirvara tókst okkur að bretta upp ermar og klára brautina á mettíma. Rúmlega 30 ungmenni eru skráð til leiks og án nokkurs vafa verður mikið stuð uppí braut á sunnudaginn. Keppnin hefst á sunnudaginn klukkan 12 og hvetjum við alla til að koma við í Akrabraut og sjá okkar björtustu vonir keppa á landsmótinu. Viljum við að lokum endurtaka að brautin er með öllu lokuð fram að sunnudagskvöldinu Það er mikil ánægja að geta tilkynnt að Akrabraut er í TOPPFORMI þessa dagana, stöku skúrir gera það að verkum að rakastigið helst eins og best er á kosið og hafa lagfæringarnar heppnast með eindæmum vel. Kv Peta Heimboð KKA um verslunarmannahelgina KKA býður hjólafólki að eiga góða hjólahelgi um verslunarmannahelgina á Akureyri. KKA mun eftir fremsta megni reyna að gera þessa helgi skemmtilega fyrir þá sem vilja koma og eiga góða helgi á aksturssvæði KKA. Motocrossbrautin mun verða í toppformi svo og endurosvæðið. Ekki er búið að teikna endanlega dagskrá en hún fer m.a. eftir veðri og þátttöku. En hugsanlegir viðburðir eru:
Annað:
Nánari upplýsingar um tímasettningar o.fl verða þegar nær dregur. F.h. KKA. Sig B.(Nítró) Unnar H og Stebbi Gull. Jæja gott fólk þá er búið að taka brautina okkar í gegn, fengum við Jói Pétur ýtu til að rista hana alla upp og jafna og fara yfir allt. Sumt var hækkað, beygjur gerðar skemmtilegri, vúppsar og pallur sett í nýja kaflann og svo framvegis. Einnig var gerður stígur fyrir yngstu ökumennina við hliðina á stóra pallinum og vil ég beina þeim tilmælum til foreldra að nota þennan stíg, þá þurfa þau ekki að keyra veginn. En eitt þarf að hafa í huga þegar brautin er keyrð að það á eftir að laga sumt, eins og tvöfalda pallinn niður í s beygjunni hann er ansi varasamur. Svo það er gott að taka bara einn rólegan hring og skoða þetta allt og keya svo eftir getu og aðstæðum. Engann fíflagang Vona að ykkur líki vel KV Peta Akrabraut verður lokuð allri umferð fram til kl 16:00 föstudaginn 25 júní Kv Peta Tekið af motocross.is Eins og margir vita þá var hjólinu hans Hjartar Líklegs Jónssonar stolið nýverið og hefur ekki enn fundist. Líkur á að hjólið finnist fara því miður minnkandi og því hefur stjórn VÍK ákveðið að halda styrktarkeppni í enduro í Bolaöldu sunnudaginn 11. júlí nk. Allur ágóði af keppninni mun renna í styrk til Hjartar til að endurnýja hjólið nú eða til að lagfæra það ef það finnst að lokum. Fyrirhuguð er ferð í álfsnes miðvikudaginn 23 júní, lagt verður af stað frá Olís kl 17:00 sem leið liggur í N1 Mosó þar sem keyptur verður miði og svo hjólað fram eftir kvöldi. Allir að mæta með góða skapið. Vífa og Skuggar eru að planleggja sýningu á Írskum dögum, höfum við fengið Akraneshöllina og verða hjólin þar girt af gestum og gangandi til ánægju og yndisauka Eitthvað er búið að eiga við brautina undanfarna viku, þvi er ekki alveg lokið og bið ég því alla um að sýna smá þolinmæði og keyra bara um fram allt verlega í brautinni, aldrei að vita nema maður rekist á eins og eina ýtu eða svo Svo fer bara að líða að day in the dust deginum okkar og kemur auglýsing fyrr hann fljótlega Er enn að bíða eftr betri þátttöku á námskeið komnir 5 manns eða svo, væri sátt að ná 10-15 svo um að gera að láta vita af sér Kv formaðurinn |
||||||
|
Copyright © 2010 vífa.is - All Rights Reserved |
||||||
blaður